Lófafar barnsins
löngu máð af
veggfóðrinu snjáða.
Á skjön við botnlaust, gapandi rúm
fangamark og hjarta
rist með hnífsoddi
E + R að eilífu.

Vaxdúkur rauður
veðrarður af
árstíðum og amstri
á skjön við allt sem eftir varð.
Litirnir hvergi fleiri
slegnir kvöldbirtu.
E + R að eilífu.

Stundaglas andans
stafur á bók
undir hæglátu ryki
á leið til þess sem koma skal.
Ómur af næturljóði
berst með vindinum.
E + R að eilífu.

 

Music by Sigurður Flosason, lyrics by Aðalsteinn Ásbergi Sigurðsson