Umvef mig endalausa haf
ég vil fara á kaf
ég er bréf í flösku
fljótandi burt

aldan sem hverfur
steinninn sem þú sverfur

Bláa haf ég berst í faðmi þér
þú ert partur af mér
- ég flýt og sekk til skiptis
sé ekki hvurt

aldan sem hverfur
steinninn sem þú sverfur

bláa haf ég berst í faðmi þér
þú ert partur af mér
þú ert partur af mér
þú ert partur af mér

 

(Music & lyrics by Ragga Gröndal)