Hey everyone!

I will have a double release concert with Song for Wendy in Fríkirkjan Reykjavík on Sunday. Buy tickets here:

http://midi.is/tonleikar/1/6831

 

Aðventuhelgin 10.-11. desember verður hugguleg í Café Flóru í Grasagarðinum. Kaffihúsið og jólabasarinn eru opin frá kl. 12-18. Á laugardeginum munu prestarnir og hjónin Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir lesa upp úr nýútkominni bók sinni Af heilum hug. Ragga Gröndal syngur og kynnir nýju plötuna sína Astrocat Lullaby. Á sunnudeginum syngur kór undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Og einnig les Sigríður Ásta upp úr Húsráðkveri Kitschfríðar og þenur nikkuna fyrir gesti. Ungt tónlistarfólk úr Skólahljómsveit Austurbæjar spilar báða dagana og gestum býðst að skreyta tré til styrktar Umhyggju, félagi langveikra barna.

Á torginu fyrir framan garðinn mun Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík selja jólatré í svaka jólastemningu alla helgina frá kl. 13.00 til 17.00.

Þær verða því ljúfar stundirnar í Grasagarðinum um helgina og tilvalið að líta við í Laugardalnum, ganga um garðinn, njóta ljúffengra jólaveitinga á Café Flóru, skoða jólabasarinn og jólatrjáasöluna, hlýða á upplestra og tónlist í fallegu umhverfi og taka þátt í að skreyta Umhyggjutréð.

Nánari upplýsingar um dagskrá Café Flóru í Grasagarðinum veitir Marentza Poulsen í síma 661-7305. 

www.grasagardur.is


Dagskrá

Laugardagur 10. desember
14:00 Prestarnir og hjónin Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir lesa upp úr nýútkominni bók sinni Af heilum hug
15:00 Ungt tónlistarfólk úr Skólahljómsveit Austurbæjar spila jólalög fyrir gesti.
16:00 Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal syngur og kynnir nýju plötuna sína Astrocat Lullaby.

Sunnudagur 11. desember
13:00 Kór undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur syngur.
14:00 Ungt tónlistarfólk úr Skólahljómsveit Austurbæjar spila jólalög fyrir gesti.
15:00 Sigríður Ásta kynnir nýútkomna bók Húsráðakver Frú Kitschfríðar og spilar á harmonikku.


Nágrannar Grasagarðsins í jóladalnum Laugardal eru líka með skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna á aðventunni, sjá: 
www.mu.is og www.skautaholl.is

 

 

 

Kraumur Music Fund has published their annual selection of 20 albums that stand out in 2011 and Astrocat Lullaby is among these 20 albums. Amazing! Here is the list:

http://mbl.is/folk/frettir/2011/12/06/20_plotur_a_urvalslista/

 

Hæ allir / Hey everyone !

Ég er mjög stolt að segja ykkur frá því að nýi diskurinn minn er kominn út og ný heimasíða með fullt af skemmtilegu efni komin í loftið. Á döfinni hjá mér er auðvitað fyrst og fremst að vekja athygli á nýja diskinum, auk þess sem ég mun koma fram með Frostrósum í desember og halda tvenna tónleika í Iðnó og á Græna hattinum sem bera yfirskriftina “Jólaglögg – Ragga Gröndal ásamt gestum”. Miðasala fyrir þá tónleika fer í loftið í byrjun desember.  Fylgist með! ;)

I’m very proud to announce that my new album is out and a new website has been put up with lots of juicy material. Enjoy!

 

 

 

Nýr diskur, Astrocat Lullaby er komin í sölu hér á síðunni. / New Album out and for sale here:

Kaupa/Buy – Astrocat Lullaby CD