Ég að öllum háska hlæ
heims í éli ströngu
mér er sama nú hvort næ
nokkru landi eða öngu.

Stundum þungbær þögnin er
þrauta lífs á vöku
alltaf lifnar yfir mér
ef ég raula stöku.

Húmar að mitt hinsta kvöld
horfi eg fram á veginn
gröfin móti gapir köld
gref ég á minn vonarskjöld
rúnir þær sem ráðast hinumegin.

 

A medley of traditional songs and words, Húmar að mitt hinsta kvöld is by Bólu-Hjálmar

Arrangement by The Icelandic Folk Ensemble