Fyrir söngelskar sálir
Hláturinn vaknar um síðir
hljómar í tómu rúmi
hlý golan og full
fagnaðar eins og vorið.
Lækurinn skynjar og heyrir
flauminn af óskilaorðum
skríða hratt niður hlíðar
á meðan einhver stígur
orgelið ótt og títt
fálmar eftir samhljómum.
Hendurnar sjást ekki framar
en handan við málað þilið
skjálfandi lágstemmd rödd
skilaboð ef þið viljið.
Hérna er allt sem þarf,
fyrir söngelskar sálir.
Music by Sigurður Flosason, lyrics by Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson


