Gefðu að móðurmálið mitt minn Jesú þess ég beiði frá allri villu klárt og kvitt krossins orð þitt út breiði um landið hér til heiðurs þér helst mun það blessun valda meðan þín náð lætur vort láð lýði og byggðum halda.