Út með illsku og hatur
inn með gleði og frið
taktu á móti jólunum
með Drottin þér við hlið

víða er hart í heimi
horfin friðarsól
það geta ekki allir haldið
gleði- og friðarjól.

Mundu að þakka Guði
gjafir, frelsi og frið
þrautir, raunir náungans
víst koma okkur við.

Bráðum klukkur klingja
kalla heims um jól
vonandi þær hringja flestum
gleði- og friðarjól.

Biðjum fyrir öllum þeim
sem eiga bágt og þjást
víða mætti vera meira um
kærleika og ást.

Bráðum koma jólin
bíða gjafirnar
út um allar byggðir
verða boðnar kræsingar

en gleymum ekki Guði
hann son sinn okkur fól
gleymum ekki að þakka fyrir
gleði- og friðarjól.

 

(By Magnús Eiríksson)