Ef hjarta mitt er valtast als hins valta
í völtum heim,
þá hlýt ég, ást mín, láta skeika að sköptu
við sköpum þeim,
og þó var, ást mín, síðan guðir geingu
um garða hér,
ei heitar unnað mjúkri mey á jörðu
af manni en þér.

En viljirðu, ást mín, hverfleik hjartans skilja:
að hált og valt
það er að elska, vona, treysta og vilja,
- þá veistu allt;
og svipulleikans tákn: mitt hálfa hjarta
- mitt heila líf -
mun aldrei verða vonsvik þín né glötun,
en vörn og hlíf.

 

(Music by Tómas R. Einarsson, lyrics by Halldór Kiljan Laxness)