Dag eftir dag
dreg ég að mér anda þinn
anda að mér daglega út og inn
já dag eftir dag.

Fljúga um í huga mér
augnablik er fleyta sér
á tímans hafi fley
sem áfram líða.

Nótt eftir nótt
læðast að mér hljóðlega
laumast inn í huga minn næturljóð
já nótt eftir nótt.

Fljúga um í huga mér
augnablik er breyta sér
í bát er siglir um
á tímans hafi.

Sumarið kemur og fer
staldrar haustið við
síðan vetur, desember
já svo kemur vor eftir langa bið
sem betur fer
birtir í huga mér .

Það húmar að
hljóðlega ég hverf á braut
andi minn svo tímalaus
fjarar út
og hverfur í tímans haf

brjótast um í huga mér
augnablik er breyta sér
í bát er siglir um
á tímans hafi.

 

Words & music by Magnús Þór Sigmundsson