Þótt ég talaði
tungu manna og engla
en hefði ekki kærleika
yrði ég hljómandi málmur
eða hvellandi bjalla
og þótt ég hefði spádómsgáfu
en hefði ekki kærleika
ég væri ekki neitt.

Og þótt ég hefði
svo sterka trú
að færa mætti fjöll úr stað
en hefði ekki kærleika
ég væri ósköp snauður
og þótt ég deildi út öllum eigum mínum
og framseldi líkama minn
en hefði ekki kærleika
þá væri ég engu bættari.

Kærleikur trúir öllu
kærleikur vonar allt
kærleikur, hann umber allt
og fellur aldrei úr gildi.

 

By Jóhann G. Jóhannson