Litli tónlistarmaðurinn
Mamma, ertu vakandi mamma mín
mamma, ég vil koma til þín
ó, mamma gaman væri að vera stór
þá vildi ég stjórna bæði hljómsveit og kór.
Mamma, þú ert elskuleg mamma mín
mér finnst gott að koma til þín
en mamma áðan dreymdi draum um þig
en datt þá framúr og það truflaði mig.
Þú varst drottning í hárri höll,
hljómsveitin álfar, menn og tröll
lék þér og söng í senn, hún var svo stórfengleg.
Tröllin þau börðu á bumburnar,
blómálfar léku á flauturnar,
fiðlurnar mennskir menn
á mandólín ég.
Allir mændum við upp til þín
eins og blóm þegar sólin skín
er þínum faðmi frá gjafir flugu um allt.
Flestum gekk vel að grípa sitt
glaður náði ég fljótt í mitt
en stóll er stóð ég á
stóð tæpt svo hann valt.
Mamma, þú ert elskuleg mamma mín
mér finnst gott að koma til þín.
Ó, mamma gaman væri að vera stór
þá vildi ég stjórna bæði hljómsveit og kór.


