Með þér
Sérðu ekki að við fæddumst til að standa hlið við hlið
og halda út á veginn saman, og líta aldrei við
með þér vil ég verða gömul og ganga lífsins veg
með þér er líf mitt ríkara, með þér er ég bara ég.
Menn segja að ég sé breytt og syngi um börnin og þig
ég syng um það sem skiptir máli, aðeins fyrir mig
eitt máttu vita að ég elska þig, meira en lífið sjálft
ég trúi án þín mitt líf væri hvorki heilt né hálft.
Með þér er vorið yndislegt,
og sumarið dýrðin ein
með þér er haustið göngutúr
og ævintýr undir stein
með þér er veturinn kertaljós,
koss og stök rós.
(Music & words by Bubbi Morthens)


