Heiðríka nótt
þú horfir róleg niður
á harma mannkyns, jarðarbarnsins tár
í fylgd með þér
með dular, dökkar brár
er draumheimsins endalausi friður.

Eilífðin bíður bakvið draumsins gler
og birtu slær á allt sem jarðneskt er
heiðríka nótt,
nótt.

Og allt sem þjáist
allt sem líknar biður
nú eygir fylling sinnar dýpstu þrár.
Og andvörp þaggast,
sefast gjörvöll sár
er svefninn boðar friður sé með yður.

Eilífðin bíður bakvið draumsins gler
og birtu slær á allt sem jarðneskt er
heiðríka nótt,
nótt.

Í draumsins löndum dýrð má nóga sjá
þar dvelur von og minning fjarskablá
og yfirskilvitlegan ljúfan blæ
nú leggur yfir himin, jörð og sæ.

 

Music by Magnús Þór Sigmundsson, words by Jakob Jóh. Smári