Áður var nóttin svo nálæg
hlý og myrkrið svo mjúkt
og máninn sem skein
á nakið hörund og hafið spegill
og þú í nóttinni nálægur
hlýr eins og myrkrið
mjúka en nú
eru aðrir tímar.

 

(Music by Tómas R. Einarsson, lyrics by Ingibjörg Haraldsdóttir)