Friður ríkir fellur jólasnjór
flosmjúk drífa yfir grund
bjölluhljómur og börn syngja í kór
það bíður heimurinn um stund.

Inn í hverju húsi loga kertin litaskær
ljósadýrðin hefur völd
jólastjarna á himninum hlær
því hátíð rennur upp í kvöld.

Nú sérhvert barn það brosir
í björtum augum speglast jólaljósið milt
og jólasveinki fer nú fljótt á stjá
sem flesta krakkana hann langar til að sjá.

Og á því verður heldur enginn bið
enn hún flýgur heims um ból
óskin góða, um gæfu og frið
og um gleðileg jól.