Gegnum galopin vindaugu
hvassar brúnir fjallsins
fugl yfir bláum mel
svífandi þar sem þú stendur
axlaður tösku og tjalddúk
horfir hingað út í öldurótið
umkomulaus í haustbirtunni
meðan lægir í huganum
hægir á ferð skýjanna
himnasmiður mælir staðinn út
lætur veröld eina
lætur vindaugun aftur.

 

Music by Sigurður Flosason, lyrics by Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson