Ein, ég stend hér og syng
ein, um lífið og þig
ég finn í hjartanu sting
hélt þú elskaðir mig.

Ein, ég hugsa um þig enn
einn, þú hjarta mitt átt
ég finn það slær vegna þín
í eins konar sátt.

Þú komst eins og skot
hittir mig beint í hjartað
þögul minningabrot
ég gleyma mun seint
og fæ aldrei skartað.

Tíminn flýgur,
ég fel min mein
skot í myrkri
sem ég á með mér ein…

um söknuð ég syng
ein, um sofandi leynd
um ást sem hjarta mitt man
og vakir í reynd.

 

By Magnús Þór Sigmundsson