Norðanáttin er nöpur,
það næðir um veröldina alla
innan jafnt sem utan
já, og ekkert sést til fjalla
fyrir hríðinni sem geysar dag eftir dag
jafnvel dauðinn sjálfur kæmi hér engu í lag
og ekki er það heldur á mínu valdi
nei, það er utan við mitt svið
og þó einhver segist vilja leggja þér lið
það er lítið sem er, það kemur að engu haldi.

Vissirð’ ekki vinan,
hann var svo óralangt genginn
og það sá ekki neitt upphaf á sögunum
en þú situr ekki uppi með fenginn
svo hér verður svolítið leiðigjarnt til lengdar, mér
langar til að hverfa burt, hvert sem er
til Ástralíu, Grænlands, guð veit hvað
en ég get ekki fært mig um set
svona flæktur í öll þessi net
sem ég forðum lagði en ég stend samt ekkert í stað.

Svartir eyðisandar,
svo langt sem augað eygir
ég get ekki varist þeim grun, stúlka
að gengnir séu á enda allir vegir
en það er einfaldast bara áfram að halda
þegar svosem engu er að tjalda
en hvað svosem gerist, það gleymist ekki neitt
og það var gott á meðan það var
og áfram og til eilífðar
nei, það er ekkert til sem fær því nokkurn tíma breytt.

Og maður ber jú ekki harm sinn á torg
í táraborg
ó nei, miklu heldur í hljóði
eða hljóðlegu ljóði
því þú sérð, allt er þetta sömu býti
og sjálfskaparvíti – ooooooh
og ég held að þú getir hannað
af hugviti þínu eitthvað annað
sem fleytir þér þangað sem bjargræðið er þér ekki bannað.

Dögunin er döpur,
jafnvel draugarnir, þeir eru farnir
ógildir, og einskis virði
eiðarnir sem voru aldrei svarnir
og ég skráset í rykið skýrsluna um okkur
en skilningurinn er allur í pörtum, ef nokkur
því ég sé allt í sundurlausum brotum
og ég segi það, og í slitrum er það sem ég heyri
nei, sögurnar verða ekki fleiri
en sólin okkar, hún er því sem næst á þrotum.

En hvers vegna að bera harm á torg,
í táraborg
ó nei, miklu heldur í hljóði
eða hljóðlegu ljóði
því þú sérð, allt er þetta sömu býti
og sjálfskaparvíti – ooooohh
og ég held að þú getir hannað
af hugviti þínu eitthvað annað
sem fleytir þér þangað sem bjargræðið er þér ekki bannað.

Já, ég held að þú getir hannað
af hugviti þínu eitthvað annað
sem fleytir þér þangað sem bjargræðið er þér ekki bannað.

 

(By Megas)