Til eru línur sem hægt er að draga
skýrt fram í dagsljósið
hendur sem fara mjúklega yfir
mosavaxinn myndflötinn
brot sem falla saman, þegar betur er að gáð.

Það sem hverfur sjónum
heldur áfram að vera um kyrrt
bakvið línur, hendur og brot
hættir aldrei að vera til.

 

Music by Sigurður Flosason, lyrics by Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson