Ég hef farið víða
og ég hef verið hér og þar
og ég veit að við öllum þessum spurningum
er til eitt og annað loðið svar.

Og ég hef verið fyrir austan,
þar sem fjöllin sökkva sjálfsagt enn
í sjóinn ég þambaði pilla
einmitt þar sem fjallaskáldið skálaði í denn.

Heilsaðu öllum heima
þeim sem heldur að vilji muna eftir mér
barnatrúnni er ég vísast búinn að gleyma
en það bíður jú hver loks eftir sjálfum sér.

Ég kom í Hallormsstað
þar sem angan engu líka
ég ætlaði mér að þefa uppi
en ég fann þar ekki nokkra slíka.

Einungis þýskar kengúrur
kynjadýr, já og kjarr tuttugu metra hátt
dreifbýlissjoppu
og gaddavír.

Heilsaðu sérhverjum heima
sem þú heldur að vilji gangast við mér
barnatrúnni er ég víst búinn að gleyma
en það bíður jú allra að þurfa að staldra við eftir sjálfum sér.

Og nú er ég hérna á mölinni
í mestri nánd og firrð
jú, mér miðar sjálfsagt eitthvað
og ég skal svara þér ef þú spyrð.

Og þegar svo allir eru komnir undir sæng
og biðja þar bænirnar sínar
þá bíð ég hér í myrkrinu
eftir að heyra þínar.

Heilsaðu öllum heima
sem þú heldur að gangist við mér.
Barnatrúnni er ég fyrir löngu búinn að gleyma
en það bíður jú hver loks eftir sjálfum sér.

Heilsaðu hverjum þeim heima
sem þar harkar aleinn af sér
barnatrúnni er ég að mestu búinn að gleyma
en þú bíður jú allavegana,
já þú bíður jú allavegana eftir mér.

 

By Megas