Aðventuhelgin 10.-11. desember verður hugguleg í Café Flóru í Grasagarðinum. Kaffihúsið og jólabasarinn eru opin frá kl. 12-18. Á laugardeginum munu prestarnir og hjónin Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir lesa upp úr nýútkominni bók sinni Af heilum hug. Ragga Gröndal syngur og kynnir nýju plötuna sína Astrocat Lullaby. Á sunnudeginum syngur kór undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Og einnig les Sigríður Ásta upp úr Húsráðkveri Kitschfríðar og þenur nikkuna fyrir gesti. Ungt tónlistarfólk úr Skólahljómsveit Austurbæjar spilar báða dagana og gestum býðst að skreyta tré til styrktar Umhyggju, félagi langveikra barna.

Á torginu fyrir framan garðinn mun Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík selja jólatré í svaka jólastemningu alla helgina frá kl. 13.00 til 17.00.

Þær verða því ljúfar stundirnar í Grasagarðinum um helgina og tilvalið að líta við í Laugardalnum, ganga um garðinn, njóta ljúffengra jólaveitinga á Café Flóru, skoða jólabasarinn og jólatrjáasöluna, hlýða á upplestra og tónlist í fallegu umhverfi og taka þátt í að skreyta Umhyggjutréð.

Nánari upplýsingar um dagskrá Café Flóru í Grasagarðinum veitir Marentza Poulsen í síma 661-7305. 

www.grasagardur.is


Dagskrá

Laugardagur 10. desember
14:00 Prestarnir og hjónin Bjarni Karlsson og Jóna Hrönn Bolladóttir lesa upp úr nýútkominni bók sinni Af heilum hug
15:00 Ungt tónlistarfólk úr Skólahljómsveit Austurbæjar spila jólalög fyrir gesti.
16:00 Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal syngur og kynnir nýju plötuna sína Astrocat Lullaby.

Sunnudagur 11. desember
13:00 Kór undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur syngur.
14:00 Ungt tónlistarfólk úr Skólahljómsveit Austurbæjar spila jólalög fyrir gesti.
15:00 Sigríður Ásta kynnir nýútkomna bók Húsráðakver Frú Kitschfríðar og spilar á harmonikku.


Nágrannar Grasagarðsins í jóladalnum Laugardal eru líka með skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna á aðventunni, sjá: 
www.mu.is og www.skautaholl.is