Hvers virði er allt heimsins prjál
ef það er enginn hér
sem stendur kyrr er aðrir hverfa á braut?
Sem vill þér jafnan vel
og deilir með þér gleði og sorg
þá áttu minna en ekki neitt
ef þú átt engan vin.

Hvers virði er að eignast allt
í heimi hér
en skorta þetta eitt sem enginn getur keypt?
Hversu ríkur sem þú telst
og hversu fullar hendur fjár
þá áttu minn en ekki neitt
ef þú átt engan vin.

Það er komin vetrartíð
með veður köld og stríð
ég stend við gluggann, myrkrið streymir inn í huga minn
þá finn ég hlýja hönd
sál mín lifnar við
eins og jurt sem stóð í skugga
en hefur aftur litið ljós,
mín vetrarsól.

 

Music by Gunnar Þórðarson, lyrics by Ólafur Haukur Símonarson