Yfir landið rökkurró
rennur eins og móða
sofnar fuglafjöld í mó
fölnar loftið rjóða.

Bundin er í báða skó
byrgir þokan hljóða
útsýnið um allan sjó
alla götuslóða.

Blunda væna barn í ró
blundaðu elskan góða.

 

Song by Ragga Gröndal, poem by Jakob Jóh. Smári